Leita í fréttum mbl.is

Frá stofnfjáreiganda - varðar lánamál hjá Glitni

Óskað var eftir því að koma eftirfarandi á framfæri og er það okkur ljúft og skylt.  Bréfið er skrifað af stofnfjáreiganda sem tók lán hjá Glitni í stofnfjáraukningunni 2007.  Lögfræðingur viðkomandi hefur ráðlagt að greiða ekki lánið og óska ekki eftir frestun. 

Við þökkum bréfið og hvetjum stofnfjáreigendur til að standa saman og láta aðra stofnfjáreigendur vita ef þeir öðlast frekari vitneskju um lánamálin hjá Glitni.  Margir hafa haft samband við okkur sl. daga vegna málsins og er skiljanlega mikil óvissa sem fólk upplifir vegna málsins.  Umfjöllun er um málið í Morgunblaðinu í dag.

 

Íslandsbanki hf.

bt. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, stjórnarformaður

 

Kirkjusandi 155 Reykjavík   

 

Efni: Greiðsla vegna skuldabréfs/lánasamnings nr. xxxxxx, dags. 18. desember 2007  Það tilkynnist hér með að undirrituð, xxxxxxxx xxxxxxxx, eigandi stofnfjárhluta í Byr sparisjóði, getur því miður ekki staðið við greiðslu, að upphæð kr. xx.xxx.xxx, sem krafist er af Íslandsbanka hf., kt. 491008-0160, samkvæmt meðfylgjandi bréfi dagsett 8.6.2009 með gjalddaga 19.6.2009, vegna síðustu greiðslu skuldabréfs nr. xxxxxx að upphaflegri fjárhæð kr. xx.xxx.xxx, sem tekið var þann 18. desember 2007 hjá Glitni banka hf., kt. 550500-3530. Lánið var veitt undirritaðri vegna kaupa á auknum stofnfjárhluta í Byr sparisjóði. Áður var greidd upphæð kr. xx.xxx.xxx þann 11.4.2008 sem fyrsta greiðsla inná umrætt lán. Sjá meðfylgjandi afrit af kvittun fyrir greiðslu dagsettri 11.4.2008. Núverandi endurmetið nafnverð og verðmæti stofnfjárhluta undirritaðrar er kr. xx.xxx.xxx.  

 

 

Undirritaðri er ljóst að Íslandsbanki hf. heldur öllum stofnfjárhlutum í eigu undirritaðrar í Byr sparisjóði sem handveð gegn umræddu láni.  Að því gefnu að Íslandsbanki hf. hafi fengið afhent frá Glitni banka hf. umrætt skuldabréf og stofnfjárhluti undirritaðrar í Byr sparisjóði sem handveð á löglegan hátt, svo samræmist öll viðeigandi lög, vill undirrituð bjóða greiðslu og uppgjör á umræddu skuldabréfi/lánasamningi með afsali á stofnfjárhluta sínum að verðmæti kr. xx.xxx.xxx eða hærra, enda hefur undirrituð þegar gengist undir slíka skilmála í umræddum lánasamning við Glitni banka hf. sem tryggingu fyrir greiðslu. Gangi Íslandsbanki hf. ekki að þessum kjörum áskilur undirrituð sér rétt til frestunar á umræddri greiðslu til fjögurra (4) mánaða svo sem öðrum lántakendum hefur verið boðin.   

 

 

Undirrituð bendir á að starfsmaður Byrs sparisjóðs hét því í samtali við undirritaða í húsakynnum Byrs sparisjóðs að Borgartúni 18 í desember 2007, áður en umræddur lánasamningur var undirritaður, að færi svo að undirrituð reyndist ekki geta greitt síðustu afborgun umrædds skuldabréfs yrði ekki krafist annarra greiðsla eða trygginga en stofnfjárhluti undirritaðrar sem veðsettir voru. Undirritaðri var einnig heitið því við undirritun umrædds lánasamnings að lántaka þessi væri þannig áhættulaus. Undirritaðri er kunnugt að öðrum eigendum stofnfjárhluta í Byr sparisjóði hafi einnig verið heitið slíkum skilmálum af starfsfólki Byrs sparisjóðs og Glitnis banka hf.    

 

Komi í ljós síðar, hvort sem er að frumkvæði undirritaðrar eða annarra er þess kunna að leita, að krafa Íslandsbanka hf. á hendur undirritaðrar og færsla umrædds lánasamnings/skuldabréfs og handveðs frá Glitni banka hf. til Íslandsbanka hf. reynist ekki standast gildandi lög, áskilur undirrituð sér rétt til að krefja Íslandsbanka hf. um fulla endurgreiðslu vegna umræddra stofnfjárhluta í Byr sparisjóði ásamt eðlilegum vöxtum frá dagsetningu þessa bréfs.

 

Virðingarfyllst __________________________

 

xxxxxxxx xxxxxxxx

kt. xxxxxx-xxxx


Tillaga til stofnfjáreigenda sem skulda Glitni vegna stofnfjáraukningar

Eðlilegt er að stofnfjáreigendur setji fyrirvara við undirskrift sinni á framlengingu lánanna við Glitni.  Slíkur fyrirvari gæti t.d. litið svona út:

 

Fyrirvari

Við kaup á stofnfjárbréfum í Byr sparisjóði, sem Glitnir banki hf. fjármagnaði með láni skv. veðskuldabréfi (tilvísun í bréfið),  var lagt fyrir undirritaðan x (skuldara) kynningarefni frá Glitni banka þar sem fram kom að krafa skv. bréfinu væri einungis tryggð með veði í hinum keyptu stofnfjárbréfum í Byr.   Undirritaður gekk þannig út frá því við ákvörðun um kaupin og var það forsenda hans fyrir lántökunni að hann bæri ekki persónulega ábyrgð á skuldinni heldur myndi einungis vera hægt að leita fullnustu í hinum veðsettu stofnfjárbréfum.   

Með undirritun minni á skilmálabreytingu þessa er undirritaður X (skuldari) ekki með nokkrum hætti falla frá ofangreindum skilningi sínum eða að viðurkenna að hann beri persónulega ábyrgð á greiðslu skuldar skv. bréfi þessu.    
 

Reykjavík x. júní 2009 

_________________________ 

Móttekið f.h. Íslandsbanka hf.  

____________________________


Hvað er að gerast með Exeter Holdings?

Ágætu lesendur! 

Það hefur ekki farið mikið fyrir Exeter Holdings sl. vikur.  Þar sem spyrja má hvort forsvarsmenn þess félags hafi tekið þátt í lögbroti, með kaupum á stofnfjárbréfum í Byr og lánveitingu Byrs til félagsins samfara þeim kaupum, er ekki úr vegi að rifja upp nokkrar staðreyndir um mál Exeter Holdings:

1.  Ágúst Sindri Karlsson, formaður Hauka, er forsvarsmaður Exeter Holdings.  Ágúst Sindri sagði í viðtali við Vísi að þegar Exeter hafi keypt stofnfjárbréfin í Byr hafi hann þarna, líkt og oft áður verið fenginn til að taka til eftir partýið. „Ég er vanur að sjá um skítverkin og taka að mér hluti sem aðrir vilja ekki".  Ágúst Sindri er lögfræðingur, viðskiptafélagi Margeirs Péturssonar til margra ára og var í stjórn MP-Banka fram á sumar 2009.

2.  Exeter Holdings er skráð fyrir 306 milljón stofnfjárhlutum, rétt tæpum 2% hlut í Byr.  Félagið keypti hlutina eftir bankahrun haustið 2008, með yfirdráttarláni frá Byr upp á rétt um 1100 milljónir. 

3.  Yfirlýsing þriggja stjórnarmanna í Byr (2008-2009) liggur fyrir um að veiting yfirdráttar til Exeter Holdings hafi verið framlengd um þrjá mánuði á fundi stjórnarinnar 19. desember.  Ekki hefur opinberlega verið greint frá frekari framlengingum á láninu og má því gera því skóna að lánið hafi gjaldfallið 19. mars, um tveimur mánuðum fyrir aðalfund Byrs.  Eftir því sem næst verður komist fékk Exeter Holdings samt sem áður að nýta atkvæðarétt sinn á aðalfundinum.

4.  Þeir stjórnarmenn sem undirrituðu yfirlýsinguna um framlenginguna voru

  • Jón Kr. Sólnes, núverandi stjórnarformaður Byrs,
  • Ágúst Ármann, sem fór með ógilt og ólöglegt umboð frá Karen Millen á aðalfundinum
  • Jóhanna Waagfjörð, sem sat í stjórninni fyrir Haga

5.  Frekari upplýsingar um Ágúst Sindra Karlsson má finna á heimasíðu Hauka:

Netpóstur: ask@haukar.is,   gsm: 820 7700

6.  Meðal þeirra aðila sem létu hluti sína af hendi þegar Exeter Holdings keypti voru:

  • Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður
  • Húnahorn, sem Ragnar Z. Guðjónsson, sparisjóðsstjóri er í forsvari fyrir
  • G Arnason, sem Gunnar Árnason, yfirmaður áhættustýringar Byrs er í forsvari fyrir

7.  Verðið sem Exeter Holdings greiddi fyrir tæplega 2% hlut, var skv. fréttum, um 1100 milljónir.  Því var metið virði á Byr í viðskiptunum, sem áttu sér stað eftir bankahrun, um 60 milljarðar.  Gengi bréfanna var nærri 1,5 á endurmetnu virði. 

8.  Líklegt má telja að ef Exeter Holdings myndi kaupa bréf þeirra stofnfjáreigenda sem nú skulda Íslandsbanka vegna 30 milljarða stofnfjáraukningar Byrs á árinu 2007, og sama verðmat yrði notað og í viðskiptunum frá því í haust, myndu skuldsetnir stofnfjáreigendur geta greitt lán sín upp að fullu og átt ágætis afgang eftir.

9. Eftirfarandi grein af www.visir.is kemur ágætlega inn á nokkur atriði málsins sem skipta máli.

http://www.visir.is/article/20090331/VIDSKIPTI06/104077224

 

Kveðja, Rakel  

  

„Eini glæpurinn er að við misstum hlutinn í veðkalli“



Ragnar Z Guðjónsson, forstjóri Byrs, segist ekki skilja af hverju Fjármálaeftirlitið sé nú að rannsaka viðskipti félags í eigu Ragnars og nokkurra annarra stjórnenda sjóðsins með stofnfjárhluti í Byr. DV greindi frá rannsókninni í dag.

„Eini glæpurinn er að við misstum hlutinn í veðkalli. Hlut sem var metinn á sjötíu milljónir," segir Ragnar í samtali við Vísi.

MP Banki gerði veðkall í hlut Húnahorns, félags í eigu Ragnars og annarra stjórnenda Byrs. Fljótlega eftir það rann hluturinn inn í félagið Exeter Holdings, félags í eigu Ágústs Sindra Karlssonar, fyrrverandi stjórnarmanns MP.

Rannsókn FME virðist beinast að því að grunur leikur á að Húnahorn hafi selt hlut sinn beint til Exeter Holdings sem hefur fjármagnað 1,8 prósent hlut sinn í Byr með yfirdráttarláni frá Byr.

„Við misstum hlutinn en framseldum hann ekki til Exeter Holdings. Við eigum skjöl sem sýna að hluturinn fór frá okkur til MP Banka. Hvað gerðist síðan í framhaldinu verða aðrir að svara til um," segir Ragnar.

Stjórn Byrs lánaði Exeter Holdings 1,1 milljarð á yfirdráttarláni fyrir kaupum á hlutum í Byr. Samkvæmt heimildum Vísis eru þar inni hlutir sem MP Banki hefur tekið veðkall í á undanförnum mánuðum. Meðal þeirra sem misst hafa bréf eru stjórnarmenn Byrs, sömu menn og tóku ákvörðun um að fjármagna hlutabréfaeign Exeter Holdings í Byr.

„Það var stjórnin sem tók ákvörðun um þessa lánveitingu. Ég framkvæmdi hana en hafði ekki hugmynd um að verið væri að fjármagna bréf sem höfðu áður verið í eigu Húnahorns," segir Ragnar.

Aðspurður hvort þetta mál hafi einhver áhrif á framtíð hans sem forstjóra Byrs segir Ragnar að hann viti það ekki. „Ef ég nýt ekki trausts samstarfsmanna og viðskiptavina þá hætti ég. Það er ekki flóknara en það. Ég veit hins vegar ekki til annars en að mér sé treyst í þessu starfi."

Ágúst Sindri Karlsson, sem á nú 1,8 prósent hlut í Byr og er fjármagnaður af sparisjóðnum sjálfur, segir í samtali við Vísi að hann hafi þarna líkt og oft áður verið fenginn til að taka til eftir partýið. „Ég er vanur að sjá um skítverkin og taka að mér hluti sem aðrir vilja ekki. Ég hef hins vegar fulla trú á Byr og vill eignast stærri hlut í sjóðnum," segir Ágúst Sindri.

Jón Kristjánsson, stjórnarformaður Byrs, er á Flórída og með slökkt á símanum. Ekki náðist í aðra stjórnarmenn við vinnslu þessarar fréttar. 

 

 

 

Exeter Holdings ehf

306.295.0261,959%

 


Hver er staðan á umboði Karenar Millen?

Eins og mörgum er kunnugt, situr meirihluti stjórnar Byrs, Jón Kr. Sólnes, Guðmundur Geir Gunnarsson og Matthías Björnsson, í krafti ógilds og ólöglegs umboðs sem kom inn á aðalfund Byrs 13. maí sl. Rétt er að muna eftirfarandi staðreyndir um umboðið:

 

1. Ágúst Már Ármann, faðir Magnúsar Ármanns og stjórnarmaður í Byr 2008-2009 (skrifaði m.a. undir framlengingu lánsins til Exeter Holdings 19. desember, ásamt Jóni Kr. Sólnes) fór með umboðið inn á aðalfund Byrs. Þar sem umboðið var óvottað hefði aldrei átt að hleypa Ágústi inn á aðalfundinn með það, en Jón Finnbogason, löglærður starfsmaður á fjármálasviði Byrs, úrskurðaði að hleypa skyldi Ágústi inn á fundinn með umboðið. Talsverðan tíma tók fyrir Ágúst að komast inn á fundinn, enda stríðir það gegn samþykktum Byrs að framvísa umboði sem ekki er vottað.

 

2. Karen Millen var eigandi að bréfunum sem umboðið er gefið út á, en bréfin eru skráð á Kaupþing Lux. Það brýtur gegn samþykktum Byrs að skrá stofnfjárhluti á aðra en eigendur þeirra.  Rétt er að geta þess að Magnús Ármann keypti helmingshlut í Karen Millen fyrirtækinu á uppgangsárum útrásarinnar (sjá t.d. síðasta tölublað Séð og Heyrt)!

 

3. Stofnfjárhlutirnir voru geymdir á safnreikningi (nominee account) hjá Kaupþingi Lux. Það brýtur gegn reglugerð um safnreikninga (706/2008) að gefa út umboð til að fara með atkvæði fyrir hluti sem geymdir eru á safnreikningi. Kaupþing Lux ber ábyrgð á að slíkt sé ekki gert.

 

4. Ég heyrði af þessu furðulega umboði strax um kvöldið sem aðalfundurinn var haldinn (13. maí) og fékk staðfest sama dag að sá sem hafði farið með umboðið hefði verið Ágúst Ármann. Þá um nóttina óskaði ég eftir því að þessi umboð yrðu til umfjöllunar á stjórnarfundi daginn eftir. Þegar það var ekki gert, óskaði ég eftir því að fá að sjá umboðin, en fékk ekki. Þá hafði ég samband við fundarstjóra (Pétur Guðmundarson, lögfræðing hjá LOGOS) og FME. Fundarstjóri taldi sig ekki vald yfir málinu, þar sem aðalfundurinn var búinn. FME vísaði málinu frá sér föstudaginn 15. maí, klukkan 17. Þá var málið kært til lögreglu og þess óskað að kjörgögn yrðu haldlögð. Það var ekki gert og eftir helgina (mánudaginn 18. maí) vísaði lögreglan málinu frá sér. Þá vísaði ég málinu aftur til FME og reyndi að fá stjórn Byrs til að taka ábyrga afstöðu í málinu.

 

5. Málið er því hjá FME eins og er, en dómstólaleiðin er skoðuð alvarlega af hópi stofnfjáreigenda, sem ætla ekki að láta bjóða sér að meirihluti stjórnar sitji ekki í umboði aðalfundar og að lýðræðið sé fótumtroðið hjá Byr.

 

6. Ólafur Arinbjörn Sigurðsson, héraðsdómslögmaður hjá LOGOS, hefur afhent stjórn Byrs minnisblað þar sem fram kemur að skv. hans áliti, sé aðalfundur Byrs löglegur og ákvörðunum sem þar hafi verið teknar verði eingöngu breytt með dómi (http://www.byr.is/upload/files/byr/minnisblad_um_adalfund_2009.pdf) 

 

Niðurstaðan er sú að fjármálaeftirlitið hefur ekki úrskurðað í málinu á þeim mánuði sem liðinn er frá aðalfundinum,  LOGOS telur aðalfundinn löglegan, meirihluti stjórnar situr enn og vilji stofnfjáraðila í kosningum er fótum troðinn.

 

Spurningin er núna, hvað á að gera í málinu?

 

Kveðja,

Sveinn Margeirsson 


Íslandsbanki með óskýr skilaboð

 Það verður að segjast eins og er, að bréf Íslandsbanka til stofnfjáreigenda í Byr, sem tóku lán vegna 30 milljarða stofnfjáraukningar Byrs á árinu 2007, eru vonbrigði.

Bréfið er að mínu mati afar óskýrt og til þess fallið að rugla fólk í ríminu.  Þar er m.a. gefið í skyn að óskýrt sé hvort fólk beri persónulega ábyrgð á lánunum sem tekin voru og að það sé á þeirra ábyrgð ef greiðslum sé frestað, þrátt fyrir að boðið sé upp á slíkt úrræði af hendi Íslandsbanka.  Samskipti mín við stofnfjáreigendur, sem leitað hafa til Íslandsbanka, hafa svo enn frekar leitt mér fyrir sjónir þá staðreynd að Íslandsbanki kemur fram með afar óskýr skilaboð í málefnum stofnfjáreigenda í Byr.  Það er afar mikilvægt að enginn stofnfjáraðili skrifi undir neitt sem afsalar honum rétti sínum í þessu máli.

Rétt er að minnast eftirfarandi staðreynda:

1.       Þegar lánin voru veitt voru stærstu eigendur Glitnis og Byrs nánast þeir sömu, þ.e. aðilar tengdir Baugi og Saxhóli, félagi fyrrverandi stjórnarformanns Byrs, Jóni Þorsteini Jónssyni.  Hagsmunaárekstarnir eru því augljósir

2.       Allt kynningarefni Byrs, (skrifað af ráðgjafanum í málinu, Glitni?), miðaði að því að telja fólki trú um að lántakan væri áhættulaus.

3.       Engum stofnfjáreiganda sem mér er kunnugt um var kynnt áhættan við stofnfjárkaupin og samfara lánveitingu.  Þetta er í andstöðu við MiFID lögin, sem tekið höfðu gildi þegar kaupin áttu sér stað.

4.       Á kynningarefni sem stofnfjáraðilar fengu við markaðssetningu lánanna frá Glitni kemur skýrt fram að engar tryggingar séu fyrir lánunum, aðrar en stofnfjárbréfin sjálf.  Samt sem áður hef ég undir höndum tölvupóst frá starfsmanni Íslandsbanka, þar sem stofnfjáreiganda er sagt að hann beri sjálfskuldarábyrgð vegna lánanna.

Stofnfjáreigendur í Byr leita nú leiða til að tryggja rétt sinn í þessu máli.  Þeir sem vilja afla sér upplýsinga er velkomið að hafa samband: thorunnrakel@gmail.com.

Þá er hægt að benda á gsm númer starfsmanna Íslandsbanka (þetta er tekið af

http://www.vbs.is/Markadurinn?action=news&id=1255573&symbol=GLB).  Ég hvet fólk til að leita upplýsinga.  

Nánari upplýsingar veitar:
Vilhelm Már Thorsteinsson, Framkvæmdastjóri fjárstýringar, sími 440
4012, GSM 844 4012, vilhelm.thorsteinsson@glitnir.is

Sigrún Hjartardóttir, Forstöðumaður fjárfestatengsla, sími 440 4748,
GSM 844 4748, netfang: sigrun.hjartardottir@glitnir.is

Már Másson, Forstöðumaður kynningarmála, sími 440 4990, GSM 844 4990,
netfang:
mar.masson@glitnir.is

SAMSTAÐA!

Rakel


Hvers virði er minnisblað frá LOGOS?

Eins og gert er á heimasíðu Byrs er rétt að benda á athyglisvert minnisblað frá LOGOS Lögmannsstofu.

 http://www.byr.is/upload/files/byr/minnisblad_um_adalfund_2009.pdf

Sérstaklega eru athyglisverð lokaorðin:

"Allar ákvarðanir sem teknar voru á 48. aðalfundi Byrs sparisjóðs eru í samræmi við samþykktir sparisjóðsins og landslög. Ákvörðunum verður ekki breytt nema með dómi."

Það er Ólafur Arinbjörn Sigurðsson héraðsdómslögmaður sem er skrifaður fyrir þessu minnisblaði.  Pétur Guðmundarson, sem var fundarstjóri á aðalfundi Byrs, er einnig lögmaður á LOGOS.

LOGOS Lögmannsstofa hefur verið nokkuð í fréttum undanfarið, m.a. vegna:

1. Húsleitar í höfuðstöðvum fyrirtækisins, þar sem leitað var gagna í tengslum við Hannes Smárason.

2. Deilna í tengslum við að LOGOS tók að sér skiptastjórn hjá Baugi, en mörgum þótti óeðlilegt að LOGOS, sem tengt var Baugi á ýmsan máta, tæki þá skiptastjórn að sér.

3. Hlutafjáraukningar Exista.

Það er spurning hvort rétt væri að fá álit annarrar lögmannsstofu á umboðsmálum hjá Byr?

Rakel

 


Stjórnarmeirihluti B-lista situr í krafti ógilds umboðs frá Karen Millen

Ágætu lesendur

Verjumbyr.blog.is hefur fengið langa hvíld en nú er komið að því að þeirri hvíld fari að ljúka.  Við hjónin ákváðum að setja síðuna í hvíld fyrir aðalfundinn hjá Byr, þar sem við vildum fremur einbeita okkur að öðrum málum en bloggfærslum. Síðustu vikur hafa svo leitt í ljós að stjórnarmeirihluti B-lista, Jón Kr. Sólnes, formaður stjórnar, Guðmundur Geir Gunnarsson, varaformaður stjórnar og Matthías Björnsson, ritari, stjórnar Byr sparisjóði í krafti ógilds og ólöglegs umboðs sem kom inn á aðalfund Byrs þann 13. maí sl.  Umboðið var gefið út af Kaupþingi Lux, að beiðni Karenar Millen.

Við heyrðum af þessu máli strax eftir aðalfundinn og höfum reynt a.m.k. eftirfarandi aðferðir til að ná fram réttlæti í málinu, en ekki gengið:

1. Setja málið í hendur FME og treysta á að FME framfylgi lögum og reglu.

2. Fá Lögreglunni málið í hendur og treysta á að Lögreglan framfylgi lögum og reglu. 

3. Fá Jón Kr. Sólnes, Guðmund Geir Gunnarsson og Matthías Björnsson til að taka á málinu af heiðarleika og samkvæmt samvisku sinni, yfirfara umboðin m.t.t. galla og lagaákvæða og endurtelja atkvæði m.t.t. niðurstöðunnar.  Afrakstur hefur verið vægast sagt rýr og tók steininn úr þegar fenginn var til skjalanna Ólafur Arinbjörn, lögmaður á LOGOS.  Ólafur Arinbjörn úrskurðaði að ekkert væri athugavert við aðalfundinn hjá Byr, eins og lesa má um á heimasíðu Byrs.

4.  Upplýsa stjórnvöld nákvæmlega um gang málsins í þeirri von að frumkvæði að sanngjarnri og heiðarlegri lausn málsins komi frá stjórnvöldum.

 

Í ljósi rýrs árangur er sú leið ein fær hér eftir að beita hörku í málinu og er nú undirbúinn frekari málarekstur fyrir dómi.  Það er algjört þrautaráð að þurfa að fara þá leið.  Meira verður fjallað um málið hér á síðunni, nú næstu daga.

 

Dæmi þá hver sem vill!

Takk fyrir allan stuðninginn sl. vikur, hann hefur verið ómetanlegur!

 

Sveinn og Rakel


Ályktun frá fundum okkar afhent aðstoðarkonu viðskiptaráðherra, Helgu Valfells.

Í dag áttum við góðan fund með Helgu Valfells aðstoðarkonu Gylfa Magnússonar, viðskiptaráðherra. Á fundinum afhentum við ályktun þá sem samþykkt var á fundum velunnara Byrs þann 7. og 14. apríl sl.

Ályktunin hljóðar svo:
“Fundurinn hvetur stjórnvöld til að styðja við rekstur sparisjóðsins og tryggja með því eðlilega þjónustu og samkeppni á fjármálamarkaði, Íslendingum öllum til heilla.
Jafnframt vill fundurinn af gefnu tilefni hvetja stjórnvöld til að tryggja að í stjórn sparisjóðsins og æðsta stjórnendateymi verði einungis skipað grandvart og heiðarlegt fólk sem tilbúið er að vinna af trúmennsku í þágu fyrirtækisins, án þess að persónulegir hagsmunir viðkomandi eða annarra fyrirtækja þeim tengdum gangi þar framar.”

Í málflutningi okkar lögðum við á það ríka áherslu að breiðfylking minni stofnfjáreigenda hefði fylkt sér að baki Byr sparisjóði og vildi vegsemd hans sem mesta og óskuðum við eftir góðri samvinnu stjórnvalda í þeim efnum.
Auk þess vöktum við athygli á að minni stofnfjáraðilum yrði sýndur sveigjanleiki og biðlund við endurgreiðslu lána sem tekin voru vegna stofnfjáraukningar árið 2007.

Greinargerð um vafasöm viðskipti með stofnfjárbréf Byrs létum við Helgu í tjé en sú greinargerð hefur einnig verið afhent sérstökum saksóknara.

Helga mun kynna málið enn frekar fyrir Gylfa Magnússyni, viðskiptaráðherra.
Ástæða er til að þakka fyrir góðar undirtektir í viðskiptaráðuneytinu.

Samstaða

Rakel og Sveinn


Viðskipti og lánveitingar til umfjöllunar á aðalfundi

 Við höfum nú óskað eftir því að viðskipti stjórnarmanna í Byr sparisjóði verði tekin fyrir með formlegum hætti á aðalfundi.  Óskað hefur verið eftir því við sparisjóðsstjóra, regluvörð og stjórnarmenn að fjallað verði um málefnið:

 

Viðskipti stjórnarmanna í Byr sparisjóði með stofnfjárbréf í Byr sparisjóði á árinu 2008.  Framkvæmd lánveitinga Byrs sparisjóðs í tengslum við viðskipti stjórnarmanna með stofnfjárbréf í Byr sparisjóði. 

 

Bent skal á að "hver stofnfjáreigandi á rétt á því að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á fundum stofnfjáreigenda, ef hann gerir skriflega kröfu um það til sparisjóðsstjórnar eigi síðar en 15 dögum fyrir aðalfund", eins og segir orðrétt í 16. grein samþykkta Byrs sparisjóðs.


MP Banki – dæmi hver fyrir sig

Margeir Pétursson og aðrir forsvarsmenn MP Banka hafa ekki viljað viðurkenna tengsl MP Banka við Exeter Holdings.  Forsvarsmenn MP Banka vildu fyrir þremur vikum síðan heldur ekki viðurkenna að hafa selt Exeter Holdings stofnfjárbréf í Byr í þeim viðskiptum sem deilur hafa staðið um.  Margeir Pétursson hefur núna viðurkennt að MP Banki hafi selt Exeter Holdings stofnfjárbréfin. 

 

Að okkar mati segir Margeir Pétursson ekki allan sannleikann þegar hann segir tengsl Exeter Holdings og MP Banka engin.  Tengsl Ágústs Sindra Karlssonar, stærsta eiganda Exeter Holdings, og Margeirs Péturssonar á árinu 2008 voru mikil, m.a. í gegnum félögin MP Banka, Vostok Holdings ehf (sameiginleg stjórnarseta) og Hraunbjarg ehf (sameiginleg stjórnarseta).  Ágúst Sindri stofnaði MP Verðbréf, forvera MP Banka, með Margeiri árið 1999 og er enn eigandi að rúmum fjórum milljónum hluta í MP Banka.  Auk þessa er Exeter Holdings skráð með aðsetur í Skipholti 50d, þar sem MP Banki er einnig til húsa.  Upplýsingar um aðsetur fyrirtækja getur Margeir Pétursson og aðrir fundið á www.firmaskra.is.

 

Að okkar mati hefur Margeir Pétursson ekki skýrt hlut MP Banka í viðskiptum Exeter Holdings með fullnægjandi hætti.  Yfirlýsingar hans stangast á, eins og hrútar á fengitíma.  Yfirlýsingar hans stangast einnig á við orð Styrmis Þórs Bragasonar, forstjóra MP Banka.  Þessu til skýringar má nefna að Styrmir hefur sagt hlut MP Banka í stofnfjárviðskiptum Exeter Holdings engan (í Kastljósi 7. apríl), en Margeir hefur á hinn bóginn hefur sagt: „að það að félag Ágústs Sindra hafi keypt stofnfé í Byr af MP Banka síðla síðasta árs hafi bara verið viðskipti“ (fréttir RÚV 16. apríl). Ef Margeir Pétursson ætlast til þess að Íslendingar trúi orðum hans verður hann að segja satt og rétt frá – frá upphafi til enda. Það er ekki við hæfi að skýla sér bakvið lagaflækjur og hringavitleysur.  Okkur ber öllum siðferðisleg skylda til að segja sannleikann.

 

Margeir Pétursson ætti líka að segja Íslendingum allan sannleikann um hagsmuni MP Banka í öðrum málum. Margeir Pétursson ætti t.a.m að segja frá því að MP Banki hefur tekið stöðu á móti krónunni.  Það er ótrúverðugt þegar forsvarsmenn bankastofnana spá falli krónunnar og hafa á sama tíma hag af því að hún falli.  Það er jafnframt ótrúverðugt fyrir bankastofnanir að þriðjungur útlána þeirra sé til tengdra aðila, en sú er raunin í tilfelli MP Banka, skv. ársreikningi félagsins fyrir árið 2008.  Þá er jafnframt ótrúverðugt, fyrir ábyrgar fjármálastofnanir, að lán til tengdra fyrirtækja (associated companies) hafi tífaldast á árinu 2008 (ársr. 2008, skýring nr. 70).

 

Okkar skoðun er sú að sannleikurinn sé sagna bestur, en þegar menn eru ekki tilbúnir til að segja satt verður hver og einn að meta það hvað satt er.  Það er gjarnan nokkuð góð ábending um það að menn segi ekki satt ef saga þeirra breytist í sífellu.  Til að gera fólki auðveldara með að mynda sér skoðun á því hvað er satt og rétt höfum við hér að neðan safnað saman nokkrum viðburðum sl. vikna sem við teljum að varpi ljósi á málavöxtu. 

Tímaröð mikilvægra atburða

7.4.2009 

Viðtal við Svein og Rakel sýnt í Kastljósi. Haft er eftir Styrmi Þór Bragasyni, forstjóra MP Banka: "Styrmir sagði hlut MP Banka í umræddum viðskiptum engan" (http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4431357) 

 

8.4.2009

Fundur um málið á Grand Hóteli.  Yfirlýsing frá þremur stjórnarmönnum Byrs berst inn á fundinn, þar sem þeir segja Exeter Holdings vera í eigu MP Banka.

 

9.4.2009

Margeir Pétursson svarar yfirlýsingu stjórnarmanna Byrs með annarri yfirlýsingu.  Segir m.a. um viðskiptin: "vegna lána sem veitt voru á sínum tíma til kaupa á bréfum í BYR og fengust þau lán uppgerð í kjölfar veðkalla. Þar með lauk afskiptum MP Banka af þessu máli"  (sjá t.d. http://eyjan.is/blog/2009/04/09/margeir-byr-deilur-ovidkomandi-mp-banka/). 

 

10.4.2009

Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður Byrs, sem átti hluta af þeim stofnfjárbréfum sem runnu til MP Banka og voru svo seld til Exeter Holdings gefur út yfirlýsingu.  Segir m.a. að þau stofnfjárbréf sem um ræðir hafi verið framseld til MP Banka í september en hafi ekki formlega verið færð yfir á nafn MP Banka vegna þess að enginn stjórnarfundur hafi verið haldinn (Jón var sjálfur stjórnarformaður Byrs á þessum tíma). 

http://www.pressan.is/Frettir/LesaAdsentefni/fyrrum-stjornarformadur-byrs-umtalsvert-eigid-tap-engin-sermedferd

 

14.4.2009

Fundur um málið á Akureyri. 

 

15.4.2009

Sveinn og Rakel hringja í Sérstakan Saksóknara og óska eftir fundi, til að leggja fram gögn. Ákveðið að starfsmenn Sérstaks Saksóknara finni fundartíma og hafi samband, sem þeir og gera.

Frétt um þátt MP Banka í viðskiptunum og tengsl við Exeter Holdings birtist í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins.  Margeir Pétursson neitar að veita viðtal vegna málsins, sbr: „Kastljós náði í dag sambandi við Margeir Pétursson, stjórnarformann MP Banka. Margeir vildi hvorki veita fréttastofu eða Kastljósi viðtal vegna málsins en sagðist algjörlega standa við fyrri yfirlýsingu þess efnis að Exeter holdings sé MP-banka með öllu ótengt.“

(http://www.ruv.is/heim/frettir/mobile/frett/store64/item260401/).

 

Margeir Pétursson og aðrir stjórnarmenn MP Banka gefa síðar um kvöldið út yfirlýsingu þar sem þeir neita því að tengsl séu á milli Exeter Holdings og MP Banka.

 

16.4.2009 

Sveinn og Rakel hitta starfsmenn Sérstaks Saksóknara og afhenda þeim gögn í málinu.  Sveinn og Rakel kæra í framhaldinu (sama dag) þann gjörning sem fólst í sölu stofnfjárhlutanna til Exeter Holdings og leggja áherslu á að þáttur MP Banka og stjórnarmanna og stjórnenda í Byr verði  rannsakaður með hraði.  Afrit af kærunni afhent Fjármálaeftirliti, Fjármálaráðuneyti og Seðlabankanum.  Öll gögn sem voru afhent Sérstökum Saksóknara send sem viðhengi á þessar stofnanir síðdegis um daginn.

 

Margeir Pétursson neitar því í kvöldfréttum sjónvarps að tengsl séu á milli Exeter Holdings og MP en segir „að það að fyrirtæki Ágústs Sindra hafi keypt stofnfé í Byr af MP Banka hafi bara verið viðskipti" (http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4456583/2009/04/16/6/) og viðurkennir þar með að MP Banki hafi selt Exeter Holdings stofnfé í Byr, þrátt fyrir að hafa neitað því áður og að forstjóri MP Banka (Styrmir Bragason) hafi áður sagt að MP Banki hafi engan þátt átt í viðskiptunum.

 

17.4.2009: 

Fjármálaeftirlitið gefur út eftirfarandi yfirlýsingu og staðfestir þar með fyrri afstöðu þess efnis að skilanefnd SPRON sé ekki heimilt að selja útibúanet SPRON til MP Banka: Í ljósi nýrra upplýsinga og breyttra forsendna sem fram hafa komið í málefnum SPRON undanfarið hefur Fjármálaeftirlitið ákveðið að árétta fyrri ákvörðun og í því skyni gera breytingar varðandi ráðstöfun eigna og skulda SPRON (http://www.fme.is/?PageID=14&NewsID=431).

Sama dag kemur yfirlýsing frá Margeiri Péturssyni þess efnis að MP Banki sé hættur við að kaupa SPRON (sjá t.d. http://www.amx.is/vidskipti/6374/).  Margeir kennir Kaupþingi um að hafa staðið í vegi fyrir því að MP Banki fengi að kaupa útibúanet SPRON.

18.4.2009

Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Nýja Kaupþings, hafnar því alfarið að bankinn hafi komið í veg fyrir kaup MP Banka á útibúaneti SPRON ( http://www.visir.is/article/20090418/FRETTIR01/601735546/-1).

  

20.4.2009:

Fréttatilkynning birtist frá forsvarsmönnum MP Banka þar sem umfjöllun Ríkissjónvarpsins um málið er gagnrýnd.  Í yfirlýsingunni segir m.a.

Við undirritaðir vorum nafngreindir eins og við hefðum átt aðild að þeim viðskiptum.  Það er rangt.“ (Margeir Pétursson, Sigfús Ingimundarson, Sigurður Gísli Pálmason; http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2009/04/20/tengjast_ekki_exeter_holding/

Þarna er Margeir Pétursson aftur kominn á þá skoðun að hann hafi engan þátt átt í viðskiptunum með stofnfé í Byr, þrátt fyrir að hafa viðurkennt fimm dögum áður að MP Banki hafi selt Exeter Holdings stofnféð.

22.4.2009

Greint er frá því í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins að Sveinn og Rakel hafi kært viðskiptin til sérstaks saksóknara (http://dagskra.ruv.is/ras2/4435638/2009/04/22/3/).  Rakel segir í viðtali: „Ég tel að fólk kaupi ekki lengur skýringar sem eru byggðar á hringavitleysu“. 

Nú er að sjá hvaða skýringar þú, lesandi góður, kaupir.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Sveinn Margeirsson og Rakel Gylfadóttir
Sveinn Margeirsson og Rakel Gylfadóttir
Stofnfjáraðilar í Byr. Áhugafólk um að heilbrigt sparisjóðakerfi fái að dafna á Íslandi.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband