Leita í fréttum mbl.is

Útgefendalýsing Byrs

Útgefendalýsingu Byrs frá nóvember 2007 má finna hér:

http://www.fme.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=5776

Vart þarf að fjölyrða um það hversu ógeðfellda lesningu er um að ræða, en vert er að benda á að stundum verður að horfast í augu við hlutina eins og þeir eru. Þegar menn hafa svo áttað sig á því hver staðan er, má taka ákvörðun um það hvort á að berjast gegn ruglinu eða hvort menn sætta sig baráttulaust við að vera beittir blekkingum og þvingunum. 

Ragnar Z. Guðjónsson og Jón Þorsteinn Jónsson, sem báðir sæta ákæru vegna Exeter Holdings, ábyrgðust útgefendalýsinguna, ásamt Magnúsi Ægi Magnússyni, sem sagt var upp störfum af Jóni Þorsteini Jónssyni, skömmu áður en málefni Exeter Holdings voru tekin fyrir af stjórn Byrs, í desember 2008. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Hagsmunaárekstrar

Ekki er um neina hagsmunaárekstra að ræða hjá stjórnarmönnum, varamönnum í stjórn eða

sparisjóðsstjórum Byrs milli skyldustarfa þeirra fyrir Byr og persónulegra hagsmuna og/eða

annarra skyldustarfa þeirra." wahahahahahah!!!!

BI (IP-tala skráð) 14.10.2010 kl. 15:10

2 identicon

Já, þetta er satt að segja ótrúleg lesning og um leið staðfesting á því sukki og misnotkun sem þarna var að komast á fullt skrið! 

 Stórkostlegt af slitastjórninni að fá PWC til að gera "sérstaka rannsókn" á þeim sömu drullusokkum og stjórnuðu í BYR á þessum tíma, og þeir sæta sjálfir málshöfðunum fyrir glæpsamlegt atferli með "7menninga klíku JÁJ" fyrir dómstólum vestanhafs!  Er slitastjórnin að gera grín, eða er þetta bara leið til að koma PWC að kjötkötlunum, þiggja nokkra milljónatuga "þóknun" af hræji hins fallna BYRs og hvítþvo um leið klíkuvini sína...

Þetta er ekki í lagi!

Norðlendingur (IP-tala skráð) 15.10.2010 kl. 11:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sveinn Margeirsson og Rakel Gylfadóttir
Sveinn Margeirsson og Rakel Gylfadóttir
Stofnfjáraðilar í Byr. Áhugafólk um að heilbrigt sparisjóðakerfi fái að dafna á Íslandi.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband