Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Réttlæti

Með dómi Hæstaréttar í dag náðist fram ákveðið réttlæti.

Það eru liðin rétt rúm þrjú ár síðan fyrsta færslan fór á þennan vef, í kjölfar umfjöllunar í Kastljósinu um Exeter Holdings málið.  Síðan þá er Byr því miður fallinn. Dómur Héraðsdóms var rökleysa, en með dómi Hæstaréttar í dag er varpað einhverju ljósi á það hverjir báru ábyrgð á falli Byrs. 

Líklega kemur aldrei fyllilega fram hverjir báru ábyrgðina á falli Byrs en líklegt er að einhver nöfn á slíkum lista gætu komið á óvart, jafnvel gætu hátt settir yfirmenn í bankakerfinu í dag borið mikla ábyrgð með aðgerðum sínum og aðgerðaleysi. Kannski kemur meira í ljós síðar.


mbl.is Fjögur og hálft ár fyrir umboðssvik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttir af kröfuhafafundi Byrs

Í kjölfar sjónvarpsviðtals við formann slitastjórnar Byrs, mega stofnfjáreigendur sem lýst hafa kröfu í þrotabú Byrs væntanlega eiga von á að vera boðaðir á sáttafund, þ.e. ef marka má orð formannsins.  Finna má fréttir frá kröfuhafafundinum hjá RÚV og á heimasíðu samtaka stofnfjáreigenda í Byr.

http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4547165/2010/11/17/12/

http://www.ruv.is/frett/fjolmenni-a-krofuhafafundi

http://www.stofnfe.is/2010/11/17/spurningar-til-slitastjornar-byr/


Eva B. Helgadóttir bannar umræður

Kröfuhafafundur Byrs sparisjóðs var haldinn í dag á Grand Hóteli.  Eva B. Helgadóttir, formaður slitastjórnar Byrs og fyrrverandi eftirlitsmaður FME hjá sjóðnum, taldi greinilega ekki óhætt að leyfa fólki að spyrja málefnalegra spurninga á kröfuhafafundinum og voru engar umræður leyfðar.  Einungs var tekið tillit til spurninga sem höfðu borist skriflega, fyrir fundinn. 

Verjandi Styrmis Þórs Bragasonar í Exeter Holdings málinu, Ragnar Hall, var fenginn til að stýra fundinum.  Ragnar er eflaust hinn vænsti maður og ágætis lögmaður, en það verður að teljast í hæsta máta ósmekklegt af slitastjórn að velja verjanda Styrmis Þórs til að stýra síðustu fundahöldum á vegum Byrs sparisjóðs, þar sem stofnfjáreigendur eiga þess kost að mæta (hafi þeir lýst kröfu).

Þá upplýsti Eva B. Helgadóttir á fundinum að hún tæki krónur 20.000 + VSK á klukkustund fyrir að vinna í slitastjórn Byrs.  Varlega áætlað má því reikna með að tekjur Evu af gjaldþroti Byrs séu á milli 2 og 3 milljónir á mánuði. 

 


mbl.is Frávísunarkröfu í Exeter-máli hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útgefendalýsing Byrs

Útgefendalýsingu Byrs frá nóvember 2007 má finna hér:

http://www.fme.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=5776

Vart þarf að fjölyrða um það hversu ógeðfellda lesningu er um að ræða, en vert er að benda á að stundum verður að horfast í augu við hlutina eins og þeir eru. Þegar menn hafa svo áttað sig á því hver staðan er, má taka ákvörðun um það hvort á að berjast gegn ruglinu eða hvort menn sætta sig baráttulaust við að vera beittir blekkingum og þvingunum. 

Ragnar Z. Guðjónsson og Jón Þorsteinn Jónsson, sem báðir sæta ákæru vegna Exeter Holdings, ábyrgðust útgefendalýsinguna, ásamt Magnúsi Ægi Magnússyni, sem sagt var upp störfum af Jóni Þorsteini Jónssyni, skömmu áður en málefni Exeter Holdings voru tekin fyrir af stjórn Byrs, í desember 2008. 


Kröfulýsing

Meðfylgjandi eru glærur sem farið var yfir á fundi SSB í kvöld og varða lýsingu kröfu í Byr sparisjóð.  Tekið skal skýrt fram að glærurnar eru eingöngu settar fram sem dæmi og í þeirri von að þær nýtist þeim stofnfjáreigendum sem hafa áhuga á að lýsa kröfu vegna Byrs sparisjóðs.  Stofnfjáreigendur eru hvattir til að leita sér þeirrar aðstoðar sem þeir telja að þörf sé á við lýsingu kröfunnar.

Kröfulýsingarfrestur rennur út 13. október nk.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Enginn sekur vegna Exeter Holdings?

Eftirfarandi frétt er tekin af mbl.is

Allir sakborningarnir þrír í máli sérstaks saksóknara gegn Jóni Þorsteini Jónssyni, Ragnari Z. Guðjónssyni og Styrmi Bragasyni lýstu yfir sakleysi sínu við þingfestingu í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þeir vildu ekki tjá sig við fjölmiðla að loknu þinghaldi. Málinu var frestað til 30. september nk.

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/07/06/lystu_allir_yfir_sakleysi_sinu/


Frestun kosningar til stjórnar MP ólögleg?

Athyglisverð athugasemd kom inn á bloggið nokkru eftir að frétt um aðalfund MP Banka var sett inn á bloggið.  Athugasemdin afrituð hér að neðan, en feitletranir eru okkar:

Jahá!  Þetta eru athyglisverðar upplýsingar Sveinn.  Ég fór á þessa netslóð og fann samþykktirnar.  Nú er ég ekki sérfræðingur í lögum, en það vakti athygli mína að skv. grein 4.03.2 í samþykktunum, er tekin fram sérstök heimild til að fresta afgreiðslu á a) skýrslu stjórnar og/eða b) ársreikninga félagsins til framhaldsaðalfundar, enda krefjist a.m.k. 1/3 heildarhlutafjárhafa þess með skriflegum hætti á fundinum sjálfum. 

Ekki er að finna slíka heimild til að fresta afgreiðslu annarra dagskrárliða aðalfundar til framhaldsaðalfundar.  Það hlýtur því að mega álykta sem svo, að fyrst tekin er fram sérstök heimild til að fresta TILTEKNUM málum sem liggja fyrir aðalfundinum til framhaldsaðalfundar, þá verði svo ekki farið um ÖNNUR málefni aðalfundar félagsins.  Það hlýtur því að vera brot á samþykktum MP-banka hf. að draga stórnarkjör til framhaldsaðalfundar!

FME hlýtur að kanna þetta mál rækilega og afla sér vitneskju um það hverjir hluthafa bankans stóðu að hinni skriflegu kröfu sem hlýtur að hafa komið fram á fundinum sjálfum og kanna hjá þeim um efnislegar ástæður þess og leita jafnframt skýringa á því af hverju svo mikið lá við, að réttlæti skýrt brot á samþykktum bankans (sem er n.b. skv. auglýsingum "eins og banki á að vera").

Þá vakti einnig athygli okkar hjóna, að verkaskipting milli stjórnar félagsins og framkvæmdastjóra er skýrt tiltekin í greinum 5.05 og 6.01.  Skv. þeirri fyrrnefndu er það m.a. verkefni stjórnar "að hafa stöðugt og ítarlegt eftirlit með öllum rekstri félagsins og sjá um að skipulag þess og starfsemi sé jafnan í réttu og góðu horfi.  Sérstaklega skal hún sjá um að nægilegt eftirlit sé með bókhaldi og meðferð fjármuna félagsins".  Í þeirri síðarnefndu segir m.a. að framkvæmdastjóri skuli annast daglegan rekstur skv. fyrirmælum stjórnar félagsins.  Þar er einnig tekið fram sérstaklega að hinn daglegi rekstur taki EKKI til ráðstafana sem séu óvenjulegar eða mikilsháttar.  Slíkar ráðstafanir geti framkvæmdastjóri aðeins gert skv. sérstakri heimild frá stjórn félagsins.

Eftir "veðkallið" í Exeter Holdings málinu, "seldi" MP banki hf. þessu einkahlutafélagi Ágústar Sindra Karlssonar lögmanns og stofnanda og fyrrum stjórnarmanns í MP banka, fyrrum hluti lykilstarfsmanna og æðstu stjórnenda í BYR stofnfjárbréf í sparisjóðnum, með láni frá sparisjóðnum sjálfum með engum veðum eða ábyrgðum nema í bréfunum sjálfum, sem augljóslega höfðu þá þegar mjög skert og takmarkað verðgildi miðað við það sem áður var (gert eftir hrun).

Því vaknar sú spurning, hvort Styrmir Bragason þáverandi framkvæmdastjóri bankans, sem nú sætir ákæru vegna viðskiptanna, gat virkilega framkvæmt gerninginn skv. samþykktum bankans, án vitneskju stjórnarinnar!  Tengsl Ágústs Sindra og Margeirs Péturssonar eru augljós og vel þekkt.  Gat það virkilega verið að Margeir vissi barasta EKKERT um þessi viðskipti?  Voru viðskiptafélagi hans og framkvæmdastjóri bankans að dunda sér þetta án hans vitneskju og raunar stjórnarinnar í heild?  Hvað hafa einstakir stjórnarmenn í bankanum gert til að upplýsa málið og koma gögnum til lögreglu eftir að rannsókn þess fór í gang?  Þeir eiga jú aðgang að öllum gögnum og skjölum félagsins skv. grein 5.06 í samþykktum félagsins?

Það verður gaman að fylgjast með viðbrögðum FME í þessu máli sem og öðrum á næstu dögum varðandi nýjar og stórlega hertar reglur um hæfi framkvæmdastjóra og stjórnarmanna í fjármálafyritækjum.  Eru þær reglur innantóm orð og að engu hafandi þegar á hólminn er komið?  Þá dettur manni einnig í hug það sama varðandi stjórnir og framkvæmdastjóra í fjármálafyrirtækjum sem nýverið hafa verið dæmd fyrir áralöng lögbrot gegn tugþúsundum viðskiptamanna sinna.  Er þeim líka sætt í ljósi hinna nýju og stórhertu reglna FME?


Aðalfundur MP Banka

Aðalfundur MP Banka fór fram í dag.  Eins og fram hefur komið, var kjöri stjórnar frestað á fundinum.

Það hafa margir haft samband og spurt um framboð Sveins til stjórnar MP Banka.  Sveinn skilaði framboði til stjórnarinnar sl. föstudag.  Þar sem hann er ekki hluthafi í MP Banka hafði hann ekki seturétt á aðalfundinum.  Kjöri til stjórnarinnar var frestað á aðalfundinum, þannig að sú stjórn sem sat sl. starfsár mun sitja enn um sinn.  Hana skipa Margeir Pétursson, Sigfús Ingimundarson, Kristinn Ziemsen, Hallgrímur Jónsson og Sigurður G. Pálmason: https://www.mp.is/um-mp-banka/upplysingar/stjorn-mp-banka/.

Samþykktir MP Banka koma fram hér að neðan, en þar kemur m.a. fram að stjórnarmenn skuli hafa aðgang að öllum skjölum og bókum félagsins (grein 5.06).

https://www.mp.is/media/pdf/Samthykktir_MP_Banka_2010-03-10.pdf

Það eru auðvitað vonbrigði að kjör hafi ekki farið fram, enda hefði endurnýjun í stjórn MP Banka verið kærkomin.  Sú staðreynd að Jóhanna Waagfjörð hafi verið í framboði vekur auðvitað reiði í brjóstum stofnfjáreigenda.  Jóhanna er innvígð Baugsmanneskja og var stjórnarmaður fyrir hönd Jóns Ásgeirs Jóhannessonar þegar farið var ránshendi um sjóði Byrs, með tilheyrandi tapi fyrir stofnfjáreigendur Byrs.

Umfjöllun um aðalfund MP:

http://www.ruv.is/frett/vilja-i-stjorn-mp-banka

http://www.ruv.is/frett/stjornarkjori-mp-banka-frestad

http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4498039/2010/06/30/7/


Styrmir sagður alsaklaus

Ragnar Hall, verjandi Styrmis Þórs segir hann saklausan af ákærum Sérstaks Saksóknara, skv. umfjöllun Vísis:

http://www.visir.is/logmadur-styrmis--haldlaus-akaera/article/2010634260322

 

 

 


Holskefla skaðabótamála

Eigið fé Byrs var 47 milljarðar við 6 mánaða uppgjör 2008.  Við ársuppgjörið 2008 var eigið féð 16 milljarðar og CAD var 8,3%, rétt við 8% lögbundið lágmark.  Merkileg tilviljun það! 

Þegar fyrirtækið var tekið yfir af FME var það komið langt undir lögbundið lágmark, eins og fólk getur gert sér í hugarlund.  Tugir milljarða höfðu verið hreinsaðir þarna út.

Eigið fé Byrs, eins og annarra sparisjóða, skiptist í stofnfé og varasjóð.  Stofnféð var í eigu stofnfjáreigenda og varasjóðurinn var ætlaður til að styrkja það samfélag sem sjóðurinn starfaði í.  Þessvegna töpuðu allir landsmenn á misnotkun sparisjóðanna. 

Stofnfjáreigendur skoða nú höfðun skaðabótamála.  Fólk er skilið eftir með skuldir á bakinu en eignunum hefur verið stolið.  Þeir sem bera ábyrgð skulu gjalda fyrir gjörðir sínar.

Stjórnir fjármálafyrirtækja bera ábyrgð á gjörðum sínum.  Sú stjórn sem samþykkti lánveitingu til handa Exeter Holdings á fundi 19. desember 2008 ber ábyrgð, þrátt fyrir að hafa sloppið við ákærur.  Þar voru á ferð

  • Jóhanna Waagfjörð, fjármálastjóri Haga
  • Ágúst Ármann, faðir Magnúsar Ármann
  • Jón Kristjánsson, eigandi Sunds, nátengdur Birgi Ómari Haraldssyni 
  • Jón Kr Sólnes, f.v. stjórnarformaður SPNOR 

Birgir Ómar Haraldsson ber ábyrgð á gjörðum sínum, bæði sem stjórnarmaður í Byr og VBS, þrátt fyrir að hafa ekki verið ákærður í Exeter Holdings málinu.

Sigurður Jónsson ber ábyrgð sem endurskoðandi Byrs.

Það er þetta fólk sem stofnfjáreigendur í Byr skoða núna að sækja skaðabætur til. 

 

 


mbl.is Byr fer fram á skaðabætur frá hinum ákærðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Sveinn Margeirsson og Rakel Gylfadóttir
Sveinn Margeirsson og Rakel Gylfadóttir
Stofnfjáraðilar í Byr. Áhugafólk um að heilbrigt sparisjóðakerfi fái að dafna á Íslandi.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband