24.6.2009 | 03:11
Leiðrétting á netfangi Hróbjarts
Eftirfarandi leiðrétting barst á netfangi Hróbjarts Jónatanssonar, hrl.
Óskað er eftir því að póstur sem ætlaður er honum berist á: hj@jonatansson.is
Tenglar
Sparisjóðir
- Byr Byr Sparisjóður er stærsti sparisjóður á Íslandi. Byr varð til við samruna SPH, SPV, SPK og SPNOR. Byr hefur þjónað einstaklingum og smærri fyrirtækjum. Útrás hefur verið lítil í samanburði ríkisbankana, en einhver þó. Byr á ekki hlut í Exista, eins og staðreyndin er í tilfelli SPRON og SPKEF. Meðallaun starfsmanna Byrs voru með því lægsta sem þekktist í fjármálakerfinu. ALLT ÞETTA BENDIR TIL ÞESS AÐ GRUNNREKSTUR BYRS SÉ HEILBRIGÐUR. Stöndum því vörð um Byr!
Félög tengd Byr
- VBS-Fjárfestingabanki Jón Kristjánsson og Birgir Ómar Haraldsson, stjórnarmenn Byrs, sitja einnig í stjórn VBS. Páll Þór Magnússon, mágur Jóns Kristjánssonar og fyrrum stjórnarmaður í Byr (2007) er stjórnarformaður VBS
- Exeter Holdings - Firmaskrá Exeter Holdings fékk 19.des yfirdrátt (1100 milljónir) frá Byr til kaupa á stofnfé í Byr. Ef þessar 1100 millj. hafa allar runnið til seljanda er virði Byrs í viðskiptunum 55-60 milljarðar. Eigið fé Byrs var 16 millj. 31.12. Exeter Holdings keypti í Byr eftir hrun bankakerfisins. Stofnfjármarkaður með bréf Byrs var lokaður þá. Seljendur voru MP-Banki, stjórnarmenn og starfsmenn Byrs. Ágúst Sindri Karlss., stærsti eigandi Exeter Holdings, var í stjórn MP-Banka árið 2008 og á 4200 hluti í MP-Banka.
- MP-Banki Jón Þorsteinn Jónsson, stjórnarformaður Byrs fram í mars 2009 sat í stjórn MP-Banka fram til 2007. MP-Banki lánaði hluta starfs-og stjórnarmanna Byrs fyrir stofnfjáraukningunni í Byr í desember 2007. MP-Banki sá jafnframt um stofnfjármarkað Byrs.
Fjölmiðlar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Eruð þið einungis að verja hag stofnfjáraðila eða eruð þið að verja hag starfsmanna og viðskiptavina Byrs? Mér finnst það fara að verða óljósara með hverju bloggi sem skrifað er á þessa síðu. Tek undir að arðgreiðslan fræga var ekki í lagi en það þarf að finna lausn á málunum og finna hvað er best fyrir Byr. það er greinilega ekki hægt að gera neitt í þessum arðgreiðslu málum í dag og því ættuð þið að einbeita ykkur í betri lausnum og ekki vera væla um að kosningin hafi ekki verið lögleg, á meðan þið eruð að því þá verður Byr yfirtekið af ríkinu og ykkar stofnfjárhlutur orðið að engu hver sem hann er í dag.
Kv.Jón Örn
Jón Örn (IP-tala skráð) 27.6.2009 kl. 13:23
Sæl Sveinn og Rakel,
Nú finnst mér þetta mál farið að verða ansi snúið. Ég hef stutt ykkur frá upphafi og kaus ykkar lista á aðalfundinum. Nú er mér hinsvegar ofboðið.
Ég er, eins og þið, talsmaður heiðarleika og góðra vinnubragða. En svo bregðast krosstré sem önnur tré.
Lögmaður ykkar í lögbannskröfu á hendur stjórnarmanni í Byr er enginn annar en Karl Georg Sigurbjörnsson hæstaréttarlögmaður. Nú er ég alveg orðin ruglaður? Hvernig getið þið notað slíkan aðila, ekki síst þegar mál Karls eru ennþá óútkljáð í Hæstarétti, vegna sölu á stofnfjárbréfum í SPH til Baugs? Síðan hvenær varð Karl Georg “grasrót” og umboðsmaður góðra viðskiptahátta? Samkvæmt mínum heimildum er maðurinn stórskuldugur Byr vegna lánafyrirgreiðslu í fasteignabraski!
Í ljósi þess og þeirrar staðreyndar að lögmaðurinn Karl Georg er algjörlega vanhæfur vegna eigin hagsmuna hef ég ákveðið að hætta stuðning við ykkur. Mér þykir það miður en trúverðugleiki verður að vera til staðar.
Gunnar - stofnfjáreigandi (IP-tala skráð) 29.6.2009 kl. 16:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.