19.6.2009 | 00:13
Upptökur til af símtölum við Glitni
Samkvæmt upplýsingum sem okkur hafa borist voru öll símtöl sem bárust Glitni hljóðrituð. Slík hljóðritun hefur verið afhent vegna annars máls, það höfum við staðfest frá þeim sem fór fram á viðkomandi hljóðritun.
Fyrir stofnfjáreigendur sem tekið hafa lán hjá Glitni gæti verið tilvalið að fara fram á hljóðritanir þeirra símtala sem þeir áttu við Glitni.
Tenglar
Sparisjóðir
- Byr Byr Sparisjóður er stærsti sparisjóður á Íslandi. Byr varð til við samruna SPH, SPV, SPK og SPNOR. Byr hefur þjónað einstaklingum og smærri fyrirtækjum. Útrás hefur verið lítil í samanburði ríkisbankana, en einhver þó. Byr á ekki hlut í Exista, eins og staðreyndin er í tilfelli SPRON og SPKEF. Meðallaun starfsmanna Byrs voru með því lægsta sem þekktist í fjármálakerfinu. ALLT ÞETTA BENDIR TIL ÞESS AÐ GRUNNREKSTUR BYRS SÉ HEILBRIGÐUR. Stöndum því vörð um Byr!
Félög tengd Byr
- VBS-Fjárfestingabanki Jón Kristjánsson og Birgir Ómar Haraldsson, stjórnarmenn Byrs, sitja einnig í stjórn VBS. Páll Þór Magnússon, mágur Jóns Kristjánssonar og fyrrum stjórnarmaður í Byr (2007) er stjórnarformaður VBS
- Exeter Holdings - Firmaskrá Exeter Holdings fékk 19.des yfirdrátt (1100 milljónir) frá Byr til kaupa á stofnfé í Byr. Ef þessar 1100 millj. hafa allar runnið til seljanda er virði Byrs í viðskiptunum 55-60 milljarðar. Eigið fé Byrs var 16 millj. 31.12. Exeter Holdings keypti í Byr eftir hrun bankakerfisins. Stofnfjármarkaður með bréf Byrs var lokaður þá. Seljendur voru MP-Banki, stjórnarmenn og starfsmenn Byrs. Ágúst Sindri Karlss., stærsti eigandi Exeter Holdings, var í stjórn MP-Banka árið 2008 og á 4200 hluti í MP-Banka.
- MP-Banki Jón Þorsteinn Jónsson, stjórnarformaður Byrs fram í mars 2009 sat í stjórn MP-Banka fram til 2007. MP-Banki lánaði hluta starfs-og stjórnarmanna Byrs fyrir stofnfjáraukningunni í Byr í desember 2007. MP-Banki sá jafnframt um stofnfjármarkað Byrs.
Fjölmiðlar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.