Í dag áttum við góðan fund með Helgu Valfells aðstoðarkonu Gylfa Magnússonar, viðskiptaráðherra. Á fundinum afhentum við ályktun þá sem samþykkt var á fundum velunnara Byrs þann 7. og 14. apríl sl.
Ályktunin hljóðar svo:
Fundurinn hvetur stjórnvöld til að styðja við rekstur sparisjóðsins og tryggja með því eðlilega þjónustu og samkeppni á fjármálamarkaði, Íslendingum öllum til heilla.
Jafnframt vill fundurinn af gefnu tilefni hvetja stjórnvöld til að tryggja að í stjórn sparisjóðsins og æðsta stjórnendateymi verði einungis skipað grandvart og heiðarlegt fólk sem tilbúið er að vinna af trúmennsku í þágu fyrirtækisins, án þess að persónulegir hagsmunir viðkomandi eða annarra fyrirtækja þeim tengdum gangi þar framar.
Í málflutningi okkar lögðum við á það ríka áherslu að breiðfylking minni stofnfjáreigenda hefði fylkt sér að baki Byr sparisjóði og vildi vegsemd hans sem mesta og óskuðum við eftir góðri samvinnu stjórnvalda í þeim efnum.
Auk þess vöktum við athygli á að minni stofnfjáraðilum yrði sýndur sveigjanleiki og biðlund við endurgreiðslu lána sem tekin voru vegna stofnfjáraukningar árið 2007.
Greinargerð um vafasöm viðskipti með stofnfjárbréf Byrs létum við Helgu í tjé en sú greinargerð hefur einnig verið afhent sérstökum saksóknara.
Helga mun kynna málið enn frekar fyrir Gylfa Magnússyni, viðskiptaráðherra.
Ástæða er til að þakka fyrir góðar undirtektir í viðskiptaráðuneytinu.
Samstaða
Rakel og Sveinn
Tenglar
Sparisjóðir
- Byr Byr Sparisjóður er stærsti sparisjóður á Íslandi. Byr varð til við samruna SPH, SPV, SPK og SPNOR. Byr hefur þjónað einstaklingum og smærri fyrirtækjum. Útrás hefur verið lítil í samanburði ríkisbankana, en einhver þó. Byr á ekki hlut í Exista, eins og staðreyndin er í tilfelli SPRON og SPKEF. Meðallaun starfsmanna Byrs voru með því lægsta sem þekktist í fjármálakerfinu. ALLT ÞETTA BENDIR TIL ÞESS AÐ GRUNNREKSTUR BYRS SÉ HEILBRIGÐUR. Stöndum því vörð um Byr!
Félög tengd Byr
- VBS-Fjárfestingabanki Jón Kristjánsson og Birgir Ómar Haraldsson, stjórnarmenn Byrs, sitja einnig í stjórn VBS. Páll Þór Magnússon, mágur Jóns Kristjánssonar og fyrrum stjórnarmaður í Byr (2007) er stjórnarformaður VBS
- Exeter Holdings - Firmaskrá Exeter Holdings fékk 19.des yfirdrátt (1100 milljónir) frá Byr til kaupa á stofnfé í Byr. Ef þessar 1100 millj. hafa allar runnið til seljanda er virði Byrs í viðskiptunum 55-60 milljarðar. Eigið fé Byrs var 16 millj. 31.12. Exeter Holdings keypti í Byr eftir hrun bankakerfisins. Stofnfjármarkaður með bréf Byrs var lokaður þá. Seljendur voru MP-Banki, stjórnarmenn og starfsmenn Byrs. Ágúst Sindri Karlss., stærsti eigandi Exeter Holdings, var í stjórn MP-Banka árið 2008 og á 4200 hluti í MP-Banka.
- MP-Banki Jón Þorsteinn Jónsson, stjórnarformaður Byrs fram í mars 2009 sat í stjórn MP-Banka fram til 2007. MP-Banki lánaði hluta starfs-og stjórnarmanna Byrs fyrir stofnfjáraukningunni í Byr í desember 2007. MP-Banki sá jafnframt um stofnfjármarkað Byrs.
Fjölmiðlar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ja hérna hvítþvegna liðið með hreinu samviskuna er með orméttna æru
Yfirlögmaður Landsbanka Íslands skrifaði undir framsalsbeiðni á 2,6% hlut skilanefndarinnar í BYR þrátt fyrir að hann hefði ekki haft samþykki skilanefndarinnar. Allt í plati segir skilanefndin sem hætti við söluna eftir frétt Stöðvar 2 í gærkvöld. Stofnfjáreigandi vill senda skilanefndina út í fjós að vinna.
Samkvæmt heimildum fréttastofu barst framsalsbeiðni á hlut Landsbankans inn á borð stjórnar BYRS í síðustu viku. Óskað var eftir því að sala á hlut bankans til lítils fjárfestingarfélags, Reykjavik Invest, yrði samþykkt. Eggert Páll Ólason, yfirlögmaður Landsbanka Íslands, skrifaði undir framsalsbeiðnina.
Páll Benediktsson, upplýsingafulltrúi Landsbankans, segir að framsalsbeiðnin hafi verið með fyrirvara um samþykki skilanefndarinnar. Stjórn BYRS tekur aftur á móti engar beiðnir til greina nema að sá aðili sem sendir beiðnina hafi umboð þeirra sem halda utan um hlutinn, í þessu tilviki skilanefndarinnar.
Form beiðnarinnar var með hefðbundnum hætti og var salan samþykkt. Stofnfjárlista BYRS var breytt í kjölfarið og Reykjavik Invest var með 10 stærstu eigendum sjóðsins. Skilanefndin fundaði eftir fréttir okkar í gær og tók þá ákvörðun að ógilda söluna. Páll segir ákvörðunina byggjast á því að salan hafi ekki verið góð fyrir hagsmuni bankans.
Lárus Finnbogason, formaður skilanefndarinnar og endurskoðandi Reykjavik Invest, hefur ekki viljað tjá sig um málið í dag þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og sver af sér að hafa komið að þeirri ákvörðun að selja hlutinn. Athygli vekur þó að tveir skilanefndarmenn heyrðu fyrst um málið í fréttum okkar í gær, þeir Einar Jónsson og Lárentsínus Kristjánsson.
Á fréttamannafundi á Akureyri í dag voru forsætisráðherra, fjármálaráðherra og viðskiptaráðherra öll sammála um það að Fjármálaeftirlitið verði að rannsaka þetta mál hratt og vel. Í samtali við fréttastofu í dag sagði Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, að búið væri að kanna málið. Um mistök starfsmanna Landsbankans væri að ræða og málið yrði ekki rannsakað frekar nema að eitthvað annað kæmi í ljós.
Mikil átök hafa verið í BYR en aðalfundur er á morgun þar sem ný stjórn félagsins verður kosin. Stofnfjáreigendum sem fréttastofa hefur rætt við þykir tímasetning á sölunni vera undarleg og eru ósáttir við störf skilanefndarinnar.
Stefán (IP-tala skráð) 12.5.2009 kl. 22:00
Ja hérna hér
Kæra fólk þið viljið ekkert hafa með þetta að gera, en hafið samt áhuga á að starfa með þessu pakki í stjórn
Við komum ekkert að þessari sölu," segir Rakel Gylfadóttir sem býður sig fram ásamt Arnari Bjarnasyni í stjórn Byrs.
Arnar á eignarhaldsfélagið Reykjavík Invest sem hugðist kaupa stofnfjárbréf af skilanefndar Landsbankans en formaður nefndarinnar, Lárus Finnbogason, hugðist hafa milligöngu um það.
Salan var hinsvegar háð samþykki Skilanefndarinnar en hún stoppaði söluna í gærkvöldi eftir að Fréttastofa Stöðvar 2 hafði fjallað um málið.
Maður Rakelar, Sveinn Margeirsson, er í framboði til stjórnar Byrs auk Arnars og fleiri. Þau hafa verið mikið í fjölmiðlum og barist fyrir heilbrigðu sparisjóðskerfi og héldu fjölmennan fund um málefni þar sem hundruðir mættu.
Spurð hvot þessir viðskiptahættir endurspegli heilbrigt sparisjóðskerfi segir hún of djúpt í árina tekið.
„Við viljum heiðarleika og gegnsæi og það sem vakir fyrir okkur er að það sé heiðarlegt og grandvart fólk sem standi á bak við framboðið," segir Rakel en bætir við að hún vilji að málið sé skoðað ofan í kjölinn.
Hún segist ekki hafa rætt við Arnar eftir að málið kom upp. Hún segir það mikilvægt að fá að heyra hið rétta í málinu og að hann fái að svara fyrir sig.
„Okkur þykir sárast að umræðan skuli snúast upp í þetta í kringum Byr. Við vonum bara að heiðarleiki verði í fyrirrúmi og það sitji ekki áfram menn í stjórn sem skari að eigin köku," segir Rakel en aðalfundur Byrs verður haldin á morgun. Í framboði gegn þeim er stjórn Jóns Kr. Sólnes.
Eins og Vísir sagði frá fyrr í morgun þá er tilraunin til þess að selja stofnfjárbréfin til skoðunar hjá Fjármálaeftirlitinu.
Stefán (IP-tala skráð) 12.5.2009 kl. 22:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.