12.10.2010 | 22:58
Útgefendalýsing Byrs
Útgefendalýsingu Byrs frá nóvember 2007 má finna hér:
http://www.fme.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=5776
Vart þarf að fjölyrða um það hversu ógeðfellda lesningu er um að ræða, en vert er að benda á að stundum verður að horfast í augu við hlutina eins og þeir eru. Þegar menn hafa svo áttað sig á því hver staðan er, má taka ákvörðun um það hvort á að berjast gegn ruglinu eða hvort menn sætta sig baráttulaust við að vera beittir blekkingum og þvingunum.
Ragnar Z. Guðjónsson og Jón Þorsteinn Jónsson, sem báðir sæta ákæru vegna Exeter Holdings, ábyrgðust útgefendalýsinguna, ásamt Magnúsi Ægi Magnússyni, sem sagt var upp störfum af Jóni Þorsteini Jónssyni, skömmu áður en málefni Exeter Holdings voru tekin fyrir af stjórn Byrs, í desember 2008.
Tenglar
Sparisjóðir
- Byr Byr Sparisjóður er stærsti sparisjóður á Íslandi. Byr varð til við samruna SPH, SPV, SPK og SPNOR. Byr hefur þjónað einstaklingum og smærri fyrirtækjum. Útrás hefur verið lítil í samanburði ríkisbankana, en einhver þó. Byr á ekki hlut í Exista, eins og staðreyndin er í tilfelli SPRON og SPKEF. Meðallaun starfsmanna Byrs voru með því lægsta sem þekktist í fjármálakerfinu. ALLT ÞETTA BENDIR TIL ÞESS AÐ GRUNNREKSTUR BYRS SÉ HEILBRIGÐUR. Stöndum því vörð um Byr!
Félög tengd Byr
- VBS-Fjárfestingabanki Jón Kristjánsson og Birgir Ómar Haraldsson, stjórnarmenn Byrs, sitja einnig í stjórn VBS. Páll Þór Magnússon, mágur Jóns Kristjánssonar og fyrrum stjórnarmaður í Byr (2007) er stjórnarformaður VBS
- Exeter Holdings - Firmaskrá Exeter Holdings fékk 19.des yfirdrátt (1100 milljónir) frá Byr til kaupa á stofnfé í Byr. Ef þessar 1100 millj. hafa allar runnið til seljanda er virði Byrs í viðskiptunum 55-60 milljarðar. Eigið fé Byrs var 16 millj. 31.12. Exeter Holdings keypti í Byr eftir hrun bankakerfisins. Stofnfjármarkaður með bréf Byrs var lokaður þá. Seljendur voru MP-Banki, stjórnarmenn og starfsmenn Byrs. Ágúst Sindri Karlss., stærsti eigandi Exeter Holdings, var í stjórn MP-Banka árið 2008 og á 4200 hluti í MP-Banka.
- MP-Banki Jón Þorsteinn Jónsson, stjórnarformaður Byrs fram í mars 2009 sat í stjórn MP-Banka fram til 2007. MP-Banki lánaði hluta starfs-og stjórnarmanna Byrs fyrir stofnfjáraukningunni í Byr í desember 2007. MP-Banki sá jafnframt um stofnfjármarkað Byrs.
Fjölmiðlar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
"Hagsmunaárekstrar
Ekki er um neina hagsmunaárekstra að ræða hjá stjórnarmönnum, varamönnum í stjórn eða
sparisjóðsstjórum Byrs milli skyldustarfa þeirra fyrir Byr og persónulegra hagsmuna og/eða
annarra skyldustarfa þeirra." wahahahahahah!!!!
BI (IP-tala skráð) 14.10.2010 kl. 15:10
Já, þetta er satt að segja ótrúleg lesning og um leið staðfesting á því sukki og misnotkun sem þarna var að komast á fullt skrið!
Stórkostlegt af slitastjórninni að fá PWC til að gera "sérstaka rannsókn" á þeim sömu drullusokkum og stjórnuðu í BYR á þessum tíma, og þeir sæta sjálfir málshöfðunum fyrir glæpsamlegt atferli með "7menninga klíku JÁJ" fyrir dómstólum vestanhafs! Er slitastjórnin að gera grín, eða er þetta bara leið til að koma PWC að kjötkötlunum, þiggja nokkra milljónatuga "þóknun" af hræji hins fallna BYRs og hvítþvo um leið klíkuvini sína...
Þetta er ekki í lagi!
Norðlendingur (IP-tala skráð) 15.10.2010 kl. 11:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.